TÍMABÓK handbók
Opna appið
Efnisyfirlit

Greining

Greining er tekju- og tímayfirlit fyrirtækisins á einum stað. Hún verðleggur alla skráða vinnu með sömu vél og uppgjörin nota, svo tölurnar sem þú sérð hér stemma við það sem viðskiptavinurinn fær rukkað.

Þú finnur síðuna undir Greining í hliðarvalmyndinni — hún er efst í Tímabók-hlutanum. Öll síðan er skrifvarin: hér skoðar þú og síar, en breytir engu.

Greining, heildaryfirlit Efst eru fjórar lykiltölur, þar undir 12 mánaða tekjulínuritið og loks tvær raðaðar súlulistar — eftir viðskiptavinum og eftir starfsmönnum.

Lykiltölurnar efst

Efst á síðunni eru fjögur spjöld sem draga saman valið tímabil:

Spjald Hvað það sýnir
Tekjur Verðlögð vinna á tímabilinu, samtala eftir gjaldmiðli (t.d. 40.333 kr.).
Tímar Heildartímar skráðir á tímabilinu, á sniðinu klst:mín (t.d. 128:45).
Viðskiptavinir Fjöldi viðskiptavina með skráða vinnu á tímabilinu.
Starfsmenn Fjöldi starfsmanna sem skráðu vinnu á tímabilinu.

Tölurnar taka mið af tímabilinu sem valið er í efra hægra horni og af hvaða síu sem er virk (sjá að neðan).

Ábending: Tekjurnar hér nota nákvæmlega sömu verðlagningu og uppgjörsforskoðunin — lagskiptu, dagsetta taxtana með reglunni „nákvæmasta gildi vinnur". Þess vegna má treysta því að Greining og Uppgjör segi sömu sögu.

Að velja tímabil

Efst til hægri er tímabilsröðin. Smelltu á valið til að skipta um glugga — virka valið er auðkennt.

  1. Þessi mánuður — frá 1. þessa mánaðar til dagsins í dag. Sjálfgefið.
  2. Síðasti mánuður — allur mánuðurinn á undan.
  3. Frá áramótum — frá 1. janúar til loka yfirstandandi mánaðar.
  4. Síðustu 12 mán. — rúllandi tólf mánaða gluggi.

Athugið: Tímabilsvalið hefur áhrif á lykiltölurnar og súlulistana, en ekki á 12 mánaða línuritið. Það sýnir alltaf síðustu tólf mánuði, hvað sem þú velur.

12 mánaða tekjulínuritið

Undir lykiltölunum er súlurit sem sýnir Tekjur síðustu 12 mánuði. Hver súla er einn almanaksmánuður, elsti til vinstri og yfirstandandi mánuður lengst til hægri (hann er sérstaklega auðkenndur).

  • Hæð súlunnar er hlutfall af stærsta mánuðinum í glugganum — hún sýnir stefnu, ekki nákvæma upphæð.
  • Berðu bendilinn yfir súlu til að sjá nákvæmu upphæðina fyrir þann mánuð.
  • Fyrir aftan titilinn stendur gjaldmiðillinn sem línuritið er reiknað í, t.d. · ISK.

Línuritið tekur mið af virkri síu (t.d. einum viðskiptavini), en spannar alltaf tólf mánuði.

Súlur eftir viðskiptavinum og starfsmönnum

Neðst eru tveir raðaðir listar hlið við hlið: Eftir viðskiptavinum og Eftir starfsmönnum. Efsti er sá tekjuhæsti.

Hver lína hefur:

  • Nafn viðskiptavinar eða starfsmanns.
  • Súlu sem sýnir hlutdeild í stærsta gildinu í listanum.
  • Tekjur viðkomandi á tímabilinu.
  • Tíma (klst:mín) sem viðkomandi safnaði.
  • Ör (→) lengst til hægri sem opnar spjald viðkomandi — viðskiptavin á Viðskiptavinir eða starfsmann á Fólk.

Að sía með smelli (kross-síun)

Þetta er kjarninn í Greiningu. Smelltu á línuna sjálfa (ekki örina) til að sía allt yfirlitið við þá einingu.

  1. Smelltu á viðskiptavin í Eftir viðskiptavinum. Þá:
    • birtist síuflaga efst: Sía: .
    • sýnir Eftir starfsmönnum aðeins þá sem unnu fyrir þennan viðskiptavin.
    • uppfærast lykiltölurnar og línuritið við þennan viðskiptavin.
  2. Þú getur líka byrjað hinum megin — smelltu á starfsmann og þá þrengist viðskiptavinalistinn við þau verkefni sem sá starfsmaður vann.
  3. Til að fjarlægja síuna smelltu á í síuflögunni (eða aftur á sömu virku línuna).

Ábending: Kross-síunin svarar spurningum eins og „hverjir unnu fyrir þennan viðskiptavin?" og „fyrir hvaða viðskiptavini vann þessi starfsmaður mest?" — án þess að skipta um síðu.

Marga gjaldmiðla

Ef viðskiptavinir spanna fleiri en einn gjaldmiðil er ekki hægt að leggja upphæðirnar saman á sanngjarnan hátt. Þá gerist tvennt:

  • Undir lykiltölunum birtist skýring Blandaðir gjaldmiðlar — súlur raðast eftir tímum.
  • Súlurnar raðast og teiknast eftir tímum í stað tekna, svo röðunin sé marktæk þvert á gjaldmiðla.

Tekjuspjaldið sýnir áfram samtölu hvers gjaldmiðils fyrir sig, aðskilda með · (t.d. 40.333 kr. · €1.200). Línuritið notar áfram þann gjaldmiðil sem flestir tímar tilheyra.

Færslur án taxta

Ef einhver skráð vinna á tímabilinu hefur engan taxta sem gildir daginn sem unnið var, birtist viðvörun efst:

%d færslur án taxta — ekki taldar með í tekjum.

Slíkar færslur teljast áfram með í Tímum, en leggja 0 til Tekna — því ekkert verð er til að reikna með. Þetta er merki um að vanti taxta.

Aðvörun: Þessar færslur myndu líka detta út úr uppgjöri. Farðu á Taxtar og settu viðeigandi taxta (eða Grunntaxta) svo vinnan verðleggist rétt. Greining uppfærist um leið og taxtinn er kominn.

Þegar ekkert er skráð

Ef engin skráð vinna er á valda tímabilinu sérðu skilaboðin Engin skráð vinna á þessu tímabili. í stað línurits og súlna. Prófaðu annað tímabil, eða gakktu úr skugga um að tímafærslur hafi verið skráðar.

Nýting

Neðst er Nýting — rukkanlegir tímar sem hlutfall af tiltækum tímum, fyrir hvern starfsmann og fyrir fyrirtækið í heild. Þetta er rekstrartalan á móti tekjunum að ofan: hversu stór hluti af tiltækum vinnutíma fer í rukkanlega vinnu.

Fyrir hvern starfsmann sést rukkanlegur tími, tiltækur tími og hlutfallið á milli — til dæmis „8:00 / 72:00 · 11%“. Efst í spjaldinu er heildarnýting fyrirtækisins og markmiðið sem miðað er við.

Nýting í Greiningu: hlutfall og súla fyrir hvern starfsmann Nýting: heildarnýting fyrirtækisins efst, og lína fyrir hvern starfsmann með rukkanlegum/tiltækum tímum og hlutfalli.

Tiltækur tími reiknast svona: virkir vinnudagar (mánudagur–föstudagur) á tímabilinu, að frádregnum frídögum fyrirtækisins og fjarveru starfsmannsins, margfaldað með dagshluta vikumarkmiðsins. Fjarvera lækkar því tiltækan tíma — sá sem er í viku í orlofi hefur fimm færri tiltæka daga, og nýtingin skekkist ekki af þeim.

Vikumarkmiðið er stillt í Stillingum fyrir fyrirtækið, og hver og einn getur sett eigið markmið í sínum aðgangsstillingum. Nýting ber engar upphæðir — hún telur tíma, ekki krónur — svo hún sést óháð birtingu upphæða.

Sé enginn tiltækur tími á tímabilinu (t.d. allir í fjarveru) stendur strik (—) í stað hlutfalls.

Tengt efni

  • Viðskiptavinir — spjald hvers viðskiptavinar, opnað með örinni.
  • Fólk — starfsmenn og þeirra vinna.
  • Taxtar — lagskiptir, dagsettir taxtar sem verðleggja vinnuna.
  • Fjarvera og frídagar — það sem dregst frá tiltækum tíma.
  • Uppgjör — mánaðarleg uppgjör sem nota sömu verðlagningu.